... mér finnst þetta alveg skelfilegt og gæti hreinlega grátið yfir þessu. Halló, við erum komin á 21. öldina og þetta er enn við líði og ekki neitt fáar konur, nei takk, ekki nema 97% ( að talið er ) kvenna í Egyptalandi ( í sambúð) eru beittar þessu ofbeldi, oj bara, mér býður við fólki sem gerir svona lagað... einfalt mál, skera undan mönnum sem gera svona...
Egypsk stúlka lést af völdum kynfæraskurðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það versta er að í (a.m.k.) sumum Afríkuríkjum eru það konur sem sjá um aðgerðina... í heimahúsum...
Billi bilaði, 12.8.2007 kl. 02:08
Já veit það en þetta er samt algjör viðbjóður
Bjarney Hallgrímsdóttir, 12.8.2007 kl. 02:13
Og þá skal samt refsa karlmönnunum....þú ert biluð!
Sigurbjörn Friðriksson, 12.8.2007 kl. 02:33
Hvað væri hægt að skera undan kvenfólkinu sem fremur svona aðgerðir, og það í meirihluta?
Sigurbjörn Friðriksson, 12.8.2007 kl. 02:36
þakka þér Sigurbjörn fyrir falleg orð til mín, þykir svo vænt um svona EN málið er, hverjum skyldi detta þessi fáránlega hugmynd í hug nema karlmönnum, konur í þessum menningarheimum hafa alla tíð verðið kúgaðar og beittar andlegu ofbeldi og þær einfaldlega ráða engu um sinn líkama.
Ég er nú aðeins eldri en tvær vetur og hef lesið mér heilmikið til um bæði þessi mál og önnur er varðar kúgun og undirgefni kvenna í þessum heimshlutum...
Svo kæri Sigurbjörn, líttu í eigin barm áður en þú ferð að kalla fólk sem þú þekkir ekkert bilað... og eigðu góðan dag
Bjarney Hallgrímsdóttir, 12.8.2007 kl. 04:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.