Ég er nákvæmlega eins og ein af þessum skrúfum núna, komin með þvílíkan skrúfganginn á mig eftir allt broltið í kojunni. Búin að vera að veltast í rúminu í 2 og 1/2 tíma og ekki tekist að sofna Búin að lesa nokkra kafla í glæpósögunni minni, eitt gamalt Séð og Heyrt blað, eina gamla Viku og eitt gamalt Hús&Hýbýli, slökkva svo ljósið aftur og bylta mér, fram að pissa og ein sígó svona í leiðinni, inn aftur, nokkrar bls í bókinni, slökkva ljósin og hvað, nei, hérna er ég sem sagt að röfla því ég get ekki sofnað.
Búin að telja kindur og taldi svo lengi að þær eru allar komnar í sláturhús og búið að búa til kæfu úr þeim
Ansk.... bara, best að drífa sig bara á fætur og fara í berjamó hérna rétt fyrir ofan hús eða eitthvað, kannski út að hjóla, hummm nei, sennilega stoppar pólísin þá mig og heldur að ég sé drukkin, kannski út að slá garðin.,,.... eða nei, þá verða nágrannarnir vitlausir, svo það er sennilega ekkert annað í stöðunni en að fara bloggrúnt og röfla aðeins
Vona að aðrir bloggvinir hafi sofnað á sómasamlegum tíma...
Athugasemdir
LOL, ég sofnaði ekki fyrr en í kringum þetta leyti sem þú skrifaðir þetta, þannig að ég skil þig alveg mætavel. Að sjálfsögðu fær maður heldur ekki að sofa út heldur, þannig að nú er ég hér að lesa bloggið þitt, með kaffi og hausverk af svefnleysi. Vonandi færð þú að sofa frameftir skvís
Bjarndís Helena Mitchell, 12.8.2007 kl. 11:34
Hæ! Já, fyndið að þú þekkir fjölskylduna mína :)
Vona að þú sért að jafna þig eftir andvökunótt. Ekki gott að geta ekki sofið :(
SigrúnSveitó, 12.8.2007 kl. 13:56
Segi það sama, sofnaði um þetta leyti í nótt en fékk mér svo fegurðarblund áðan.
Jóna Á. Gísladóttir, 12.8.2007 kl. 15:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.