...............heilinn gjörsamlega komin á yfirsnúning eftir allt sem maður er búin að læra, sjá og gera síðustu 3 daga í skulen, en gaman samt Frábær nýnemakynnig sem KHÍ býður upp á núna, þeir eru að gera þessa kynningu í fyrsta sinn og er það bara frábært. Maður nær að kynnast rosalega vel innan hópsins sem telur um 22 frábæra einstaklinga og liggur við að allir séu búnir að bjóða öllum i næsta jólaboð Búið að taka rúnt um allan skóla og kynna okkur fyrir öllu sem er í boði, hvort sem það er bókasafn, nemendaráðgjöf eða stúdentaráð, kynnt fyrir öllu sem fer fram í skólanum.
Er í góðu yfirlæti hér í Hafnó hjá Sigrúnu, Danna og Tristan Snæ en er farin að sakna Halldórs voða mikið, hitti hann samt eftir 3 daga en það er nú lengra síðan ég sá hann síðast eða vika þannig að þetta hefst allt
Jæja, ætti víst að vera að skoða WebCt núna en ekki að blogga eða taka skyndibloggrúnt, en kommon, smá pása verður nú að eiga smá líf fyrir utan skulen ( er að æfa mig í dönsku, þarf að lesa eitthverjar skruddur á dönsku, þannig að allur er varinn góður)
síiíjú öll leiter... er líka sko að æfa mig í ensku, alveg góð þar sko
Flokkur: Bloggar | 22.8.2007 | 17:25 (breytt kl. 17:28) | Facebook
Athugasemdir
Hlakka til að fá þig heim skvís!!
Huldabeib, 22.8.2007 kl. 21:25
Til lukku með að vera byrjuð í skóla,,,,,,, nokkuð sem ég ætla mér í náinni framtíð, ná mér í kennsluréttindi ef hann Hróbjartur hleypir mér inn næsta vor.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 21:27
Hlakka sömuleiðis til að sjá þig Hulda og restina af the family
Magga, ég er búin að hitta Hróbjart og hann er nú bara snilli þessi maður, mjög svo líflegur og skemmtilegur fyrirlestur hjá honum Hann hlýtur að hleypa þér inn
Bjarney Hallgrímsdóttir, 22.8.2007 kl. 22:04
Gangi þér vel í skólanum stelpa
Eva , 22.8.2007 kl. 22:29
Good luck, min kære ven!!!!!!!!!!!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.8.2007 kl. 22:55
Maður verður nú að leika sér líka gangi þér vel.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.8.2007 kl. 23:01
Gangi þér allt í haginn!
kveðja! Gummi R
Guðmundur Rafnkell Gíslason, 23.8.2007 kl. 09:55
Ertu að byrja í fjarnámi í Kennó?
SigrúnSveitó, 23.8.2007 kl. 10:16
Gangi þér vel!
Huld S. Ringsted, 23.8.2007 kl. 13:19
Godt at du er glad for skolen
Guðrún Þorleifs, 23.8.2007 kl. 13:55
Já Sveitamær, fyrsta árs nemi í KHI í fjarnámi, grunnskólakennarinn
Bjarney Hallgrímsdóttir, 23.8.2007 kl. 19:13
Allt er nú til.... ég hafði ekki hugmynd um að þú værir með blogg..datt niðrá það eftir einhverjum ótrúlegum krókaleiðum og ekki vissi ég heldur að þú værir byrjuð í fyrsta bekk aftur En gangi þér rosa vel í skólanum
Erna Grétars (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 23:20
ertu í bekk með þessum "dönsku"? Vinkona mín, Áslaug, búsett í Roskilde, var að byrja í Kennó í fjarnámi.
SigrúnSveitó, 26.8.2007 kl. 19:20
Heyrðu nei, er ekki með útlendingunum í hóp, það eru nokkrir búsettir erlendis en þær lentu í með eitthverju öðrum en okkur hér á Austur-og Norðurlandi... það eru þó nokkrir í fjarnámi erlendis frá...
Bjarney Hallgrímsdóttir, 26.8.2007 kl. 21:34
Já, þetta er snilldarlegt, þetta fjarnám. Þær eru einmitt 4, held ég, búsettar í Dk.
SigrúnSveitó, 27.8.2007 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.