Ekki góður sólahringur að baki:(

Er búin að vera lasin í sólahring, fór að finna fyrir ógleði í gær eftir leikinn, sem strákarnir okkar unnu. Fór snemma í koju og svaf og ekki svaf í alla nótt og í dag. Ætlaði svo að fara að læra um hádegið en þá tók ógleðin öll völd að nýju með tilheyrandi gubbum Sick Gerði því ekki meir í lærdómi í dag en að gera hausinn og búið... og ég á að skila þessu verkefni í kvöld...en bara get ekki klárað það, svo það verður að koma í ljós hvort kennarinn tekur tillit til ælupestar og ógeðs.

Og svo töpuðu strákarnir fyrir frökkumFrown var nú ekki sátt, frekar en allir aðrir. Annars lá maður bara hér í sofen og horfði hálf dofin á leikinn, hefði nú ekki haft heilsu í að vera með æsing...

En ætla að halda áfram að liggja hér og gera ekki meir en það, hef nákvæmlega enga orku...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona að þér  batni fljótt elskan, leikurinn var dapur.  Knús austur  Love You 

Ásdís Sigurðardóttir, 20.1.2008 kl. 20:51

2 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Vonandi liggurðu ekki enn Badda mín, loðna lodda færeyska capelin enska, djöfuls hörmung þessi handbolti var að horfa á Þýskalnd-Ísland

Grétar Rögnvarsson, 22.1.2008 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband