Allt er gott sem endar vel...

ég á strák sem lenti í þessu slysi og það get ég svarið, ég hélt ég færi yfir um hérna í dag, sonurinn sendi mér sms rétt svona 5 mínútum áður en slysið varð og sagði vera mjög hált og þeir myndu renna svona frekar mikið til á veginum, rétt eftir að ég var búin að svara, alveg í sjokki að sjálfsögðu, hringdi hann og sagði mér að þeir hefðu veltCrying

Ég er búin að skrifa um þetta inn á heimasíðu okkar hérna í Austra á Eskifirði (íþróttafélagið) http://www.austri.is/

Sonurinn kominn heim, en hann fór í félagsmiðstöðina í kvöld svo ég er farin í koju


mbl.is Rúta fauk af vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Gott að hann meiddist ekki. Knús

Bjarndís Helena Mitchell, 9.2.2008 kl. 00:10

2 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Sammála Badda allt er gott sem endar vel, þið gerður vel í að taka á móti strákunum, flott hjá ykkur. Kveðja úr suðurhöfum.

Grétar Rögnvarsson, 9.2.2008 kl. 00:56

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Úff, manni brá suddalega við þetta slys. Gott að ekki fór verr. Sá viðtöl við gaurana í fréttum í gær. Svo yndislegar gelgjur, að  manni hitnaði verulega um hjartaræturnar og - átthagaræturnar! Bið að heilsa stráknum - og þér.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.2.2008 kl. 12:42

4 identicon

Allt er gott er endar vel. Gott að enginn meiddist.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 14:58

5 Smámynd: Ómar Ingi

Veit ekki hvort að sonur þinn var í viðtali eftir þetta slys en það var einn hundfull að fá ekki að halda afram keyra aftur útaf ekkert mal bara svo lengi sem við getum keppt.

Gott að allir eru heilir en hressleiki drengjana stendur uppúr hehe

Ómar Ingi, 9.2.2008 kl. 19:01

6 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Hallgrímur Óli Helgason, 9.2.2008 kl. 20:17

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábært að þeir skildu sleppa elsku strákarnir ykkar.  Hafðu það gott um helgina vina mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 21:52

8 Smámynd: Valan

Þeir voru alveg dásamlegir í fréttunum tóku þetta greinilega ekki nærri sér bara hundfúlir að fá ekki að keppa.

Flottir.

Valan, 10.2.2008 kl. 12:26

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Úff, sá einmitt frétt um þetta slys í blöðunum og nobbarahjartað sló hraðar... Gott að stráksi slapp.

SigrúnSveitó, 12.2.2008 kl. 08:17

10 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Þetta hafa sannarlega verið heppnir peyjar þarna á ferð. Gott að ekki fór verr.

Kær kveðja frá DK 

Guðrún Þorleifs, 12.2.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband