Já já, ekkert smá sem ég fæ flotta afmælisgjöf á morgun - eða litla gullmolann minn hann Tristan Snæ. Hann og mammzan hans ætla að koma austur á morgun - koma í snemmbúið páskafrí og velja flottasta dag ársins til að koma.
Hann er að vísu bara nýfarin suður þessi elska en við vorum bæði svo veik síðustu 2 dagana hans hérna að við bara sátum eiginlega allan daginn og horfðum á teiknimyndir - nenntum lítið annað að gera - enda bullandi flensa í gangi hjá okkur báðum.
Er búin að vera að baka og baka í dag - en ekki fyrir ammmmælið - nei nei, engin veisla svona þegar maður er bara 32 (hóst hóst )Baksturinn í dag var út af kökubasar sem við foreldrar strákann í 3 fl. kk. Fjarðabyggð ætlum að halda, en þeir eru að safna sér pening því þeir ætla á stórt alþjóðlegt fótboltamót í RVK í sumar (ReyCup) Ég ætla að vera með strákunum að selja á föstudaginn og það verður nú örugglega bara stuð - vona þeir verði ferlega duglegir að verðleggja bara nógu hátt Þetta er önnur fjáröflunin sem við erum með fyrir og með þeim, en við seljum grænu tunnuna hérna í hús í vetur og svo held ég að þeir stefni á að halda fótboltamaraþon í vor - það verður gaman
Annars var nú ekki þægilegast í heimi að brjóta tíu egg og ná eggjahvítunni sér úr þegar maður hefur bara eina og hálfa hendi til að notast við - en já, er sem sagt ennþá að drepast í hendinni eftir doksann í gær - spurning hvernig það fer...
En best að fara að sofa 31 ára og vakna 32 ára á morgun (Hóst - hóst - hóst, meira hvað þetta kvef ætlar seint úr mér )
Athugasemdir
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Badda hún á afmæli í dag..................
Til hamingju með 32. árin elsku kellingin mín, næ þér eftir rúman mánuð.
Njóttu dagsins og láttu Gelgjuna dekra við þig.
Valan, 13.3.2008 kl. 08:25
Það eru greinilega mörg afmælisbörn í dag, innilega til hamingju með daginn elskuleg
Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 15:04
Til hamingju með Daginn Elskan mín mundi það í morgunn hehe
Rut (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 15:21
Til Hamingju Með Afmælið elsku frænka!!
Ég vona að þú njótir dagsins og fáir þér eina, tvær, þrjár kökusneiðar (eða bara alveg heila köku...ég meina þetta er nú einu sinni þinn dagur...!!) í tilefni dagsins.
Knús á þig frá okkur,
Lína og Dave
Lína og Dave Marl (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 16:40
Elsku Badda "frænka"
Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Badda hún á afmæli í dag... Til hamingju með afmælið Við verðum nú að fara hittast þetta gegnur ekki...
Vonandi áttiru góðan dag gaman að fá frænda í heimsókn
kveðja Sigga Magga og Guttarnir
Sigga Magga,Stebbi,Guðjón Berg og Hlynur Fannar (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 20:55
Til hamingju með daginn ljúfa.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 20:59
Innilega til hamingju með daginn þinn!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.3.2008 kl. 21:39
Til lukku með daginn!! Sjáumst á mánudaginn klukkan 8:30
Úrsúla Manda , 13.3.2008 kl. 22:07
Lukku kvitt
Ómar Ingi, 14.3.2008 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.