...en þá er ég ekki að meina brjálað veður heldur svo hrikalega gott veður og búið að vera í viku. Sól, logn og 10-12 stiga hiti. Ekkert merkilegt kannski við það....EN það er alveg hrikalegt að sitja inni og læra
Maður hefur dregið fyrir alla glugga og lætur eins og úti sé brjálað veður, snjókoma, skafrenningur, slydda,100 stiga frost og allt það. Að vísu er alveg haugur af snjó úti ennþá. Fór aðeins í Austfirsku alpana um helgina, 3 tíma hvorn daginn, svo beint í sundlaugina. Er svo búin að mæta í sund (heita pottinn) þessa vikuna og maður er bara að verða eins og svertingi
Nákvæmlega svona er veðrið búið að vera, eins og er á myndunum, nema fjöllin eru ennþá hvít...
Athugasemdir
Snilld
Ómar Ingi, 18.4.2008 kl. 18:25
Dásamlegt veður, minnir mig á vorin heima á Húsavík. Gangi þér vel að klára prófin elskan mín.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 19:36
Yndislegt veður á yndislegum stað. En farðu að læra í hausinn á þér
Sóley Valdimarsdóttir, 19.4.2008 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.