Er að breytast í túrista :)

Er búin að vera að túristast svolítið hérna fyrir austan síðustu daga. Við einkasonurinn fórum í Kárahnjúka s.l. miðvikudag og máttum keyra yfir stífluna og var það ekkert smá tilkomumikið allt saman, hef ekki komið þarna í 5 ár, eða stuttu eftir að þeir byrjuðu að byggja hana og vá hvað það hefur mikið breyst. Í dag fórum við svo í siglingu á Lagarfljótsorminum, á Lagarfljótinu og var það bara mjög fínt - fyrir utan að þurfa að borga 4000 kr fyrir okkur tvö, full dýrt finnst mér, en við vorum búin að ákveða að sigla með þeim í dag, svo kjéllan splæsti bara Tounge Enda annáluð fyrir það að eiga haug af money Wink

Í lok næstu viku ætlum við einkasonurinn svo að trippa aðeins um landið, skoða Gullfoss, Geysi, Þingvelli og eitthvað meir, honum nægir það víst ekki lengur syninum að hafa séð þetta þegar hann var 3 ára og vill fara að sjá þetta aftur LoL Ætlum einnig að vera komin suður á laugardaginn næsta og taka menningarnóttina þar, allt í lagi að skoða það líka svona einu sinni eða svo. Er svo búin að fara á nokkrar bæjarhátíðir í sumar, fyrir sunnan, norðan og austan, þanning að já, ég er að breytast í túrista, ég sem nenni nú helst ekki að keyra mikið út og suður, maður lætur sig hafa það...

Vorum líka í bústaðnum um helgina, með Júllu og co. Ólympíuleikarnir teknir í nefið þarna, aðeins glápt og þá helst var maður orðin æstur í gær - ég segi nú bara eins og Guðmundur þjálfari, ,,þetta var nú fullmikil spenna fyrir mig" Grin En eitt stig í höfn þar og við komin í 8 liða úrslitin - geggjað

Horfði á bandaríska gulldrenginn í sundi taka á móti 8 gullverðlaununum sínum í nótt og ég sagði þá að ég væri að æfa mig í að horfa á verðlaunaafhendingu, því ég ætla nefnilega að fagna alveg ógeðslega bráðum, eftir nokkra daga, þegar strákarnir ,,okkar" taka á móti bronsinu á OL - já, eins og ég sé þetta núna, þá er það sko ekkert ómuglegt WizardWizard

En best að fara að setja sig í startholurnar fyrir leikinn á eftir, er að gúffa í mig kaffi núna svo maður nái nú að vera vel vakandi á meðan leik stendur - sef svo bara út á morgun, enda engin ástæða til að vera að rífa sig á fætur snemma þegar ekkert er að gera hjá manni nema að þrífa, taka til og þrifa meir - bara að liggja sem lengst í rúminu Tounge

100_3511

100_3513

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

100_3532

Einkasonurinn og Kárahnjúkar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huldabeib

Hlviti er drengurinn flottur þarna... en hvar er öryggisvestið?? Hlakka til Badda mín þegar það fer að róast hjá okkur og við getum aðeins slakað á saman.

Huldabeib, 18.8.2008 kl. 00:49

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Við fórum einmitt upp á Kárahnjúka þegar við vorum búin að vera á Neistaflugi. Gaman að hafa séð þetta. Keyrðum svo inn að Sænautaseli og fengum okkur lummur og kaffi, alger snilld!

Knús... 

SigrúnSveitó, 18.8.2008 kl. 12:23

3 Smámynd: Sóley Valdimarsdóttir

Hæ hæ. Flottar myndir, af flottum strák. Ég verð líka í rvk um næstu helgi, frábært, vissi ekki að það væri menningarnótt einmitt þessa helgi, Bara æði. Sjáumst og heyrumst.

Sóley Valdimarsdóttir, 18.8.2008 kl. 21:21

4 Smámynd: Helena

Það eradeilis flakk á minni  Greinilega fengið NITROSTART á Lundinum  Sumir eiga nú bara nóg með að vera í einnar viku dagstatus frá Blómabænum

Stórt  Knússssssssssssssssssssssssss

Helena, 19.8.2008 kl. 00:02

5 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Á virkilega að vera i Rvk á ómenningarnótt Badda mín, þorirðu því, ég ætla nú að drífa mig heim í sæluna áður en sá ófögnuður gengur í garð, ætlaði nú eiginlega að vera búinn að hringja í þig, en við spjöllum bara eftir helgi. Hafið það bara sem best þú og Halldór og goða skemmtun.

Grétar Rögnvarsson, 19.8.2008 kl. 15:14

6 Smámynd: Valan

Held þér væri nú nær að drífa þig í Skurðinn og kíkja á okkur kellurnar klikkuðu, heldur en vera að þvælast í ómenninguna í Borginni  Ég gæti vel tekið fyrir þig lagið og dansað magadans ef út í það er farið.

Kveðja úr Skurðinum,

Valan, 19.8.2008 kl. 16:41

7 identicon

Þið eruð ekkert búinn að vera neitt smá dugleg að skoða landið í sumar. Flottar myndir enda ekkert smá flott fyrirsæta já ég á allveg eftir að fara gulnahringinn. Sjáumst góða skemmtun í borg óttans

kveðja Sigga Magga 

Sigga Magga (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband