Þá er maður komin í kotið - einkasonurinn komin heim frá afa sínum, þannig að nú verður bara ósköp venjulegt heimilishald á okkur næstu 2 mánuðina eða svo
Það er nú bara nokkuð gott, var í 7 vikur á ,,Hælinu", kom heim í hálfan mán, suður aftur í hálfan mán í skólann og já, bara alveg 7 vikur þangað til ég fer í næstu staðlotu - þannig að það verður bara ljúft.
Var að klára að ganga frá úr töskum og pokum, prenta út haug af efni fyrir skólann svona í leiðinni, tala við Línu frænku i Kanada og Klöru frænku í USA á Skype, djö... er það magnað - maður er með Webcam og alles og getur séð þær, þær mig og svo bara tölum við við tölvurnar - skrítin þessi tækni í dag - það er annað en .... bla bla.... bara æðislegt að geta talað við ættingjana út um allan heim - og fyrir ekki neitt
Jæja, best að fara að henda sér í koju, erum boðin í hádegismat á morgun, síðbúin afmælisveisla hjá honum Kalla litla mínum - auðvita bíður hann Böddu sinni í ammmmmælið sitt og ef hún er ekki heima á afmælisdaginn, nú þá er bara veisla fyrir þá gömlu þegar hún hunskar sér heim
Athugasemdir
Gott að vera komin heim; skil þig einungis fullkomlega. Vona að Reykjalundardvölin geri þér gott og áfhrifa hennar gæti vel og lengi.
Góða skemmtun í ammmmmælinu.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.9.2008 kl. 15:08
Huld S. Ringsted, 7.9.2008 kl. 19:15
Já þessi tækni er sko bara bestust!! Æðislega gaman að heyra í þér, takk kærlega fyrir að hringja í mig.
Knús á ykkur bæði,
Lína
Lína Marl í Kanada (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.