Já, litli sæti frændi minn var skírður s.l. laugardag, 13 des og fékk hann það fallega nafn Metúsalem Hansson Kjérúlf. Hann var alveg yndislegur í skírninni, svaf þegar hann kom í kirkju, svaf meðan verið var að klæða kappann úr og í skírnarkjólinn og svaf svo alla veisluna - ekki hægt að segja annað en að hann sé vær og góður þessi elska - bara sætastur
Myndir frá mér inn í albúminu (var nefnilega ekki búin að tæma myndavélina - en núna eru nokkrar komnar þar inn )
Nokkrar myndir af honum úr skírninni...
Svona var maður alla skírnarathöfnina og í veislunni líka - SOFANDI
Metúsalem með stóra bróður sínum, Kristófer, sem hélt á honum undir skírn - bara sætir...
Flokkur: Bloggar | 17.12.2008 | 20:52 (breytt 19.12.2008 kl. 07:40) | Facebook
Athugasemdir
Mikið er hann frændi litli yndislegur, innilega til hamingju elskan mín. sendi þér góða nótt í austrið
Ásdís Sigurðardóttir, 17.12.2008 kl. 22:21
Þú verður að fyrirgefa en nafnið Metúsalem er ekki gott, ekki hér á Íslandi. Mér finnst það líka athyglisvert hvað mörgum, og þá sérstaklega ömmur finnst börnin alltaf vera best þegar þau sofa.
Bríet (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 18:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.