Jejejejeje:)

Sko mína menn, þetta geta þeir Kissing

Einkasonurinn að fara að heiman í fyrramálið og kemur ekki aftur heim fyrr en á föstudagskvöld/nótt.  Keppa á Dalvík kl. 5 á morgun, eftir leik þá verður brunað inn á Akureyri og pizza og bíó og svo gista þeir á Akureyri. Á föstudag fá þeir svo morgun og hádegismat hjá þeim í Þór ( vona þeir eitri nú ekki fyrir þeim) en svo keppa þeir við Þór kl. 5 á föstudag og svo heimferð um kvöldið.

Sú gamla ætlaði nú að bruna norður kl.1 á föstudag, eftir vinnu, en ég var að koma frá doksa, hélt ég væri með heilan sandkassa í öðru auganu því það er búið að vera að agnra mig ferlega síðan í gær.  En nei, engin sandkassi í auganu heldur sýking sem ég hef fengið eftir þetta bölvaða kvef og hálsbólgu.  Fékk eitthvað hræðilegt pensílínkrem sem ég á að setja í augað á þriggja tíma fresti og ég get svo svarið það, ég sé allt í móðu og er því alls ekki líkleg til að geta keyrt til Akureyrar á föstudag, snögt snögtFrown

Ætlaði nú að sjá einn leik í viðbót hjá guttunum í 4. fl. Fjarðabyggð og svo á laugardag ætluðum við einkasonurinn að sjá leik með mfl. kk. Fjarðabyggð við Þór, en það kemur leikur eftir þennan, prittí sjúr með þaðSmile

Bara búin að vera nokkuð góð í að pikka inn með öðru auganu því hitt er í móðu, hehehe

En góða nótt allir og sweet dream...


mbl.is Liverpool sigraði Toulouse í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

leiðinlegt að heyra, vonandi batnar þér í auganu!

Huld S. Ringsted, 15.8.2007 kl. 22:57

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Þú verður fljót að hrista þetta af þér og ferð bráðum að sjá okkur með báðum.... en þangað til  +

kveðja úr Mosó

Herdís Sigurjónsdóttir, 15.8.2007 kl. 23:51

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég var ekki búin að gleyma leikjunum á morgun og hinn, muna senda ljós og sigurkveðjur norður. Láttu þér nú batna og farðu vel með þig.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.8.2007 kl. 00:11

4 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Láttu þér batna, kannski verður þú orðin góð á föstudag, allavega vona ég það. Sweet dreams.

Bjarndís Helena Mitchell, 16.8.2007 kl. 00:29

5 Smámynd: Huldabeib

Sandkassasýking??

Huldabeib, 16.8.2007 kl. 17:17

6 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

baráttukveðjur til einkasonarins og þín

Halli

Hallgrímur Óli Helgason, 16.8.2007 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband