Færsluflokkur: Bloggar
allir dropar í boddýinu búnir...
amen á eftir efninu...
Bloggar | 21.12.2007 | 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Einhvers staðar segir að maður velji sér ekki fjölskyldu en maður geti valið sér vini. Það er nú sko allt satt og rétt en það vill nú bara þannig til að ég er svona nokkuð sátt við familýuna og að sjáflsögðu vinina, en það er einn frændi sem ég get nú alltaf hlegið af og það er hann Nikki. Nú hefur hann ratað inn á síður youtube og vil ég nú alveg endilega deila þessu með ykkur öllum þarna úti
Bara að smella á linkinn á þá birtist þessi elska Hann er gjörsamlega óborganlegur...
http://www.youtube.com/watch?v=bUhdoxBFae4
Bloggar | 16.12.2007 | 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Einn góður svona á aðventunni ÍSLENSKAR KONUR, JÁ TAKK
Þrír menn sátu saman og voru að monta sig af því hvernig þeir höfðu látið nýju konurnar sínar fá skyldur og verkefni heima fyrir.
Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colarado og hann hafði sagt henni að hún ætti að þvo upp og þrífa húsið. Það tók nokkra daga en á þriðja degi kom hann heim í hreint hús og uppvaskið búið og frágengið.
Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði skipað konu sinni að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Fyrsta daginn hafði ekkert gerst annan daginn hafði það aðeins skánað og þann þriðja var húsið hreint, uppvaskið búið og svaka steik og meðlæti í matinn.Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði henni að hennar verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá garðinn, þvo þvott og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma. Hann sagði að fyrsta daginn hefði hann ekki séð neitt, annan daginn sá hann ekki neitt en á þriðja degi minnkaði bólgan aðeins svo hann sá aðeins með vinstra auganu, nóg svo hann gat útbúið sér eitthvað að borða og sett í uppþvottavélina!
Bloggar | 14.12.2007 | 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
já já, kjéllan tók sér frí frá próflestri og skellti sér í að horfa á einn leik eða svo og ekki varð maður fyrir vonbrigðum með þann leik Liverpool vann sem sagt M...... (eitthvað lið frá Frakklandi) 4-0 og er komið áfram í meistaradeildinni, í 16 liða úrslit, þannig að mikil hamingja ríkir á heimilinu hjá mér og guttanum. Það var nú heldur ekki til að skemma þetta að gamli góði Leedsarinn Harry Kewell átti nokkuð í tveimur mörkum, gamla Leeds hjartað fór alveg á flug hjá mér og pabba, en við guttinn tilkynntum einmitt komu okkar til hans í kvöld, eins og svo oft áður hann er með Sýn, ekki við, svo hann situr uppi með okkur, en hann hefur svo sem bara gaman af því að fá einhvern til að röfla við meðan á leik stendur og eru þeir fínir saman, hann og einkasonurinn,já einmitt, ég er alveg stundum svona þegar þeir eru að rífast í dómara, þjálfara og leikmönnum, í GEGNUM SJÓNVARPIÐ, skil ekki alveg þess hvöt
En annars bara þetta sama, lestur og lestur fyrir síðasta prófið sem er 19. des.
Og jú annað, loksins tókst kjéllunni að koma því í gegnum bæjarráð að öryrkjar fengju frí lyftukort í Oddskarðið, til jafns við eldri borgara, sem eru búin að vera með frítt í skariði í milljón ár. Það er búið að veltast með það mál í þó nokkurn tíma í nefndinni minni, íþrótta-og tómstundaráði, og alltaf var það samþykkt þar og bæjarráð samþykkti það svo líka fyrir ári síðan en gerðist svo ekkert eftir það, svo maður bara hélt þessu til streytu og sendi svo fyrirspurn um þetta í gær og loksins höfðum við erindi sem erfiði og ber að fagna því að loksins kemur eitthvað jákvætt frá bæjarráði.
Meðfram próflestrinum hefur maður verið að skrifa á eitt og eitt jólakort sem þarf að senda og pakka inn jólapökkum sem þarf líka að senda, maður tekur ekki séns á að senda þetta allt 19 des, svo maður stelur tíma hér og þar frá próflestri
En nú er það kojan...
Bloggar | 11.12.2007 | 23:30 (breytt kl. 23:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
er sem sagt ennþá á lífi og er HEIMA hjá mér, ekki á stofnun
Þetta hafðist og guði sé lof fyrir gleðileg jól segi ég nú bara. Náði að klára allt, skrifaði alveg helling um helling... og þá hlýtur nú eitthvað að vera rétt, allavega fimma og það nægir til að ná þessum ákaflega leiðinlega og næstum tilgangslausa námsþætti og það ætla ég að guði og gæfan fylgi mér þegar einkun verður gefin svo ég þurfi ekki að taka þetta bull aftur...
En ég veit alveg af hverju mér gekk svona vel, eða náði allavega 5 og það er að ég var í happabolnum mínum, bolur sem ég notaði alla skólagöngu mína í VA og tók takk fyrir glimrandi próf í honum (notaði hann samt aðallega í próf, hann var svona spari enda er LEEDS voðalega mikið spari ) Já, þetta er sem sagt LEEDS bolur sem ég er búin að eiga í c.a. 5-6 ár, keypti hann þegar það gekk AÐEINS betur hjá þessum elskum en ef ég næ þessu prófi, þá fer Leeds að komast í fyrstu deild
Takk fyrir þeir sem kommentuðu, ástarþakkir fyrir það og Vala mín, ég vil þér einmitt ekki svo illt að fara að mæta í jarðaför núna, svo við hittumst bara síðar... á Sigló eða í firðinum fagra
Best að moka aðeins út hjá sér... það er ekki alveg eins og það séu að koma jól hérna á þessu heimili... en skítt með það, þau koma þó að það sé smá rusl og ryk...
Bloggar | 7.12.2007 | 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
... kvíði svo fyrir prófinu á morgun í málstefnu og málsniði og samskipti og miðlun... held ég verði komin á stofnun í fyrramálið áður en ég kemst yfir skarð...
Amen á eftir efninu...
Bloggar | 6.12.2007 | 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
...í landsliðinu í kvöld.
Stefán Gísla spilaði allan leikinn og Eggert kom svo inn á þegar c.a. 15 mín voru eftir af leiknum. Þeir stóðu sig vel þessar elskur þó leikurinn hafi tapast... En það kemur annar leikur eftir þennan og þá gengur þetta allt betur, eiga eftir að slípa sig allir betur saman með nýjan þjálfara og þeir félagar eiga örugglega eftir að spila saman fleiri landsleiki og halda uppi stolti okkar Eskfirðinga...
Það er ekki á hverjum degi sem tveir landsliðsmenn koma frá litlum bæ út á landi og við hljótum að vera ákaflega stollt af þeim..., allavega ritarinn...
Til lukku strákar
Spurning til ykkar sem lesið: hvað voru Eskfirðingarnir tveir mörg prósent af liðinu??? og þá meina ég af 11 leikmönnum...
Svara í commentin takk...
Bloggar | 21.11.2007 | 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gullfoss og Geysir hafa herjað á litlu fjölskylduna í Dalbarðinu og liggur frúin nánast dauð þessa dagana guttinn um síðustu helgi. Þegar svona ógeðsklega SKÍTAflensur herja á fólk, af hverju geta þá fjölskyldumeðlimir ekki bara lagst allir í einu, í stað þess að dreifa þessu á marga daga... nei bara spyr...
Brjálað að gera í skulen og hef ekki tíma í flensur, blogg og svoleiðis dúllerí, blogga mikið mikið eftir 19 des
Bloggar | 20.11.2007 | 11:44 (breytt kl. 11:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jæja, er ekki komin tími á að við hér á Eskifirði stofnum íbúasamtök-hagsmunasamtök fyrir Eskifjörð. Mikið hefur verið rætt og spjallað hér á síðunni hjá Kristjönu bloggvinkonu minni http://kristjanag.blog.is/blog/kristjanag/ . (Fjarðabyggð...hvað er eiginlega málið...)
Endilega lesið þetta og commentin líka.
Á öðrum stað í bloggheimum má svo líka lesa þetta:
http://gretarro.blog.is/blog/gretarro/ og skoða commentin líka...
Ákveðin maður hamrar á því á báðum stöðum að ég sé í íþrótta-og tómstundaráði og er það bara alveg rétt hjá honum... EN opnunartími sundlaugarinnar var ekki ákveðin af okkur og veit ég bara ekki hver ákvað þetta... Hef ekki fengið svör frekar en fólk sem sendir inn fyrirspurnir á vef Fjarðabyggðar
Menn eru ekki á eitt sáttir hérna á Eskifirði og því er kannski komin tími á að stofna hagsmunasamtök hérna á Eskifirði.
Spurnig hvað verður gott fólk... auglýsi hér með eftir fólki sem hefur áhuga á þessu...
kv. Badda
Bloggar | 10.11.2007 | 13:25 (breytt kl. 13:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fékk áskorun í dag um að setja rannsóknarritgerð mína og bekkjarsystur minnar hérna inn á bloggið, þetta væri eitthvað sem mörgum kæmi við og margir þyrftu að íhuga aðeins. Ég að sjálfsögðu spurði Klöru ritgerðarskólabekkjarsystur mína um þetta og hún veitt fullt leyfi, enda fengum við flott fyrir hana, eða svona 9.5 Ætla því að leyfa þeim sem nenna að lesa um hvernig foreldrar eiga EKKI að haga sér á leikjum barna sinna...
Njótið sem nennið...
kv. Badda
Margir hafa lent í því að mæta á íþróttaleiki barna sinna og þurft að hlusta á foreldra ausa svívirðingum yfir dómara, þjálfara og jafnvel börnin í hita leiksins. Af hverju ætli þessir foreldrar hagi sér á þennan hátt? Getur það verið að ástæðan sé brostnir draumar þeirra sjálfra um að verða stjörnur í íþróttum eða er um að ræða óheyrilegar kröfur um að barnið þeirra verið næsta stjarna Íslands? Ekki er ólíklegt að samhengi sé þarna á milli því marga hefur dreymt um að verða íþróttahetjur en ekki orðið það og lifa sig þá í gegnum börn sín með óheyrilegum kröfum. Að okkar mati er forkastanlegt að foreldrar láti svona; mikil hætta er á því að þetta brjóti börnin niður og að sögn Hermanns Kristins Hreinssonar, þjálfara á Eskifirði, hefur það komið fyrir að börn hætti íþróttaiðkun eftir svona hegðun hjá foreldrum. Segist hann vita þess nokkur dæmi að börn hafi hætt íþróttaiðkun vegna hjálparkokka á hliðarlínunni.
Því miður gerist það allt of oft að foreldrar skipti sér svo mikið af íþróttaiðkun barna sinna og annarra að börnin viti varla sitt rjúkandi ráð og taki ákvarðanir sem þau hefðu sennilega aldrei tekið án afskiptanna. Við undirritaðar höfum báðar margsinnis orðið vitni að óskemmtilegum atvikum á hliðarlínunni og keyrir stundum um þverbak. Sjálfsagt væri hægt að fylla heilu bækurnar af atvikum sem við, eða aðilar okkur tengdir, höfum þurft að horfa upp á og er ekki ástæða til að fara yfir margar slíkar sögur. Ætlum við að láta nægja að segja frá atviki, sem stjúpsonur Klöru varð vitni að á pæjumóti á Siglufirði sl. sumar, en þá tók faðir nokkur upp á því að taka sér stöðu við mark andstæðinganna og trufla stúlkuna sem stóð í markinu m.a. með því að hreinlega segja henni að verja ekki skot andstæðinganna. Við þessa skipun kom svo mikið fát á vesalings stúlkuna að hún gerði ekki tilraun til að verja mark sitt og leiddi þessi afskiptasemi nær til hatrammra slagsmála á milli þessa föður og föður markmannsins (Ívar Sæmundsson 2007).
Íþróttafélögin láta sitt ekki eftir liggja hvað viðkemur því að halda foreldrum í skefjum og hafa ýmis félög séð ástæðu til þess að setja texta inn á vefsíður sínar þar sem hvatt er til góðrar hegðunar á hliðarlínunni. Stefán Ólafsson, íþróttafrömuður hjá KA á Akureyri, áréttar í pistli á vefsíðu félagsins að oft séu mjög skýr tilmæli til foreldra á íþróttamótum um hvar þeir eigi að halda sig á meðan á leik stendur. Segir hann þessi tilmæli ekki sprottin úr engu, þar sem talið er að hróp þeirra geti valdið truflun í leik (Stefán Ólafsson). Þess vegna er það óskiljanlegt þegar foreldrar hegða sér svona og má segja að krafan um sigur taki öll völd.
Halldór er 14 ára gamall sonur Bjarneyjar og æfir hann knattspyrnu í sinni heimabyggð. Við spurðum hann að því hvernig honum myndi líða ef móðir hans tæki upp á því að hrópa og kalla á leikmenn og starfsmenn á leikjum hans. Svaraði hann því til að líklegast myndi honum líða mjög illa; hann myndi skammast sín, sjálfsálitið myndi örugglega minnka og hann væri ekki viss um hvort hann færi aftur á æfingar hvað þá hvort hann myndi spila fleiri leiki. Halldór á nokkra góða félaga í fótboltanum sem hann segir að eigi foreldra sem láta oft eins og vitleysingar á hliðarlínunni og hann segist oft vorkenna þessum félögum sínum (Halldór Bjarneyjarsson, 2007).
Hermann Kristinn Hreinsson er þjálfari Halldórs hjá Austra á Eskifirði. Aðspurður segir hann frá því að hann hafi séð mörg ljót atvik í þjálfun sinni. Eitt sinn var ég að þjálfa lið í 3. flokki í Reykjavík. Drengur í liðinu var að keppa og var faðir hans með mikil læti á hliðarlínunni. Drengurinn svaraði föður sínum og fljótlega voru feðgarnir komnir í hár saman urðu lætin svo mikil að drengurinn gat engan veginn einbeitt sér að leiknum sjálfum. Í lok leiks var hann orðinn svo miður sín að hann gekk grátandi af velli og kom aldrei aftur á fótboltaæfingar. Þarna stuðlaði faðir á hliðarlínunni að því að mjög efnilegur leikmaður hætti alveg í boltanum, segir Hermann og bætir við að þegar börn upplifi svona atvik geri þau að hans mati oft uppreisn gegn foreldrum sínum. Segir Hermann að mjög sorglegt sé að horfa upp á slíkt. Oft gera foreldrar sér enga grein fyrir hvað þau eru að segja eða gera. Þeir halda oft að þeir séu að hvetja liðið sitt þegar þeir eru í raun eingöngu að hrópa á barnið sitt, segir hann og tekur jafnframt fram að ef þjálfarar séu jákvæðir þá myndist jákvæð stemming hjá foreldrum, en neikvæðir þjálfarar smiti foreldra af neikvæðninni. Hugsjónin um íþróttir sem forvörn sé því fokin út í veður og vind þegar foreldrar láti svona, þau geri meiri skaða við að láta svona heldur en hitt.
Á vefsíðu KA kemur fram að margir þjálfarar segi að börn hafi komið til þeirra og beðið þá um að tala við foreldra sína og hreinlega að biðja þá um að halda kjafti því þau verði bara fyrir truflunum frá hrópum þeirra og köllum. Oft heyrist á vellinum skjóttu frá foreldrum þegar besta ákvörðunin sé að gefa á samherja. Margir foreldrar vilji nefnilega að sitt barn skori mörkin. Það sé hins vegar auðvitað hlutverk þjálfarans að stýra liðinu og kalla skipanir inn á völlinn, en foreldrar eigi að hafa það hlutverk með höndum að hvetja börnin áfram og hrósa þá alltaf liðinu í heild. Fram kemur í þessum vefpistli Stefáns að líklega stuðli þessi köll foreldranna ekki að öðru en að trufla börnin. Þau eigi nóg með að halda boltanum og koma honum á samherja án þess að verða fyrir áreiti af hliðarlínunni. Stefán kemur líka með athyglisverða samlíkingu þegar hann bendir á að með því að skerast á þennan hátt í ákvarðanatöku og sköpun hjá barninu, gætu þeir allt eins skorist í leikinn þegar börnin væru að taka próf í skólanum; foreldrarnir myndu þá mæta og taka prófin fyrir þau í stað þess að leyfa þeim að spreyta sig sjálfum (Stefán Ólafsson).
Stefán vitnar í grein sinni í áhugaverða rannsókn á því hve langan tíma tekur fyrir barn að bregðast við áreiti í leik. Fram kemur að það tekur þjálfara eða foreldri 1,1 sekúndu að sjá aðstæður og hugsa kallið. Kallið sjálft tekur 1,9 sekúndur, en tíminn sem það tekur barnið að heyra kallið og vinna úr upplýsingum er þrjár sekúndur. Það gefur auga leið að ef liðið hafa sex sekúndur frá því að aðstæðurnar komu upp og þar til leikmaður heyrði kallið hefur margt gerst í millitíðinni. Augnablikið er liðið og því ólíklegt að kallið skipti nokkru máli, nema þá að hafa neikvæð áhrif á leikmanninn (Stefán Ólafsson).
Það er skrítið að það þurfi að gefa út heilu og hálfu bæklingana til foreldra til að biðja þá um að haga sér eins og fullorðið fólk á hliðarlínunni. Þetta er engu að síður staðreynd og hafa m.a. KSÍ og KA gefið út leiðbeiningar sem sérstaklega eru ætlaðar foreldrum, og fjalla um hvernig þeir eigi að hegða sér. Það þætti nú saga til næsta bæjar ef það væru til samskonar bæklingar fyrir foreldra krakka sem spila á hljóðfæri, t.d. í skólahljómsveit. Það myndi sennilega skjóta skökku við ef foreldrar á hljómleikum hjá börnum sínum færu að hrópa og kalla á sviðið: Spilaðu hraðar! eða Spilaðu betur! Hætt er við að okkur þætti slík hegðun óásættanleg og að við myndum ekki sætta okkur við hana. Það er hins vegar engin ástæða til að sætta okkur fremur við svona hegðun á íþróttaleikjum.
Getur verið að leynist sannleikskorn í hugleiðingum okkar að um brostnar vonir foreldra geti stýrt svona hegðun? Á vefsíðu KSÍ er grein sem heitir Hættumerki fyrir foreldra. Þar stendur að ótvírætt hættumerki sé þegar foreldrar upplifi sjálfa sig og sinn knattspyrnuferil í gegnum knattspyrnuiðkun barnsins síns. t.d. með því að ætla stráknum sínum að verða næsti Eiður Smári til þess að láta drauma sína rætast. Ekki er annað hægt en að taka undir heillaráðið sem birtist á vefsíðunni: ...leyfðu barninu að vera í knattspyrnu á sínum forsendum og hafa gaman (www.ksi.is).
Það er okkar kenning að þessi þróun á fyrirbærinu fótboltaforeldri sé tilkomin vegna þess hvernig þjóðfélagið hefur þróast; foreldrar vinna mikið og eru sífellt með samviskubit yfir því. Þeir vilja börnunum allt það besta og vilja styðja þau með ráðum og dáð í því sem börnin taka sér fyrir hendur. Jafnframt vilja þessir foreldrar vernda börnin fyrir því að verða undir í samkeppninni. Hin ríka þörf mæðra að vernda börnin sín virðist oft brjótast út á hliðarlínunni þar sem þær vernda afkvæmin með kjafti og klóm.
Bloggar | 7.11.2007 | 21:40 (breytt kl. 21:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)