Mikið svakaleg umferð er hérna í bænum:S

Það tekur orðið  tæpan klukkutíma að komast í skólann úr Hafnafirði - þar er nánast óslitin umferð þegar maður er að koma út úr Vallarhverfinu í Hafnafirði og alveg að KHÍ.

Mikið er ég fegin að ég þarf bara 2x að mæta í skólann kl.8.30 - ég væri nú engan veginn að meika þetta ef ég þyrfti að gera þetta á hverjum degi.

Þeir sem eru með mér í staðlotu og eru á bíl segja sömu söguna, sama hvar þeir eru í bænum. Mér fannst ég ógurlega bjartsýn í morgun þegar ég lagði af stað kl. 7.35 í skólann en ég bara rétt náði í tíma kl. 8.30...Sideways

Það verður ljúft að koma heim á laugardaginn í rólegheitin og enga traffík Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 2.9.2008 kl. 17:19

2 identicon

Oohh ég fæ svona Eskifjarðarsaknaðarsting þegar ég sé bannerinn hjá þér :/

 Vona að þér gangi vel.

Hrefna S Reynisdottir (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 18:05

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Verðurðu í bænum í vetur eitthvað að ráði??  Knús Duck 4  Duck 4 Duck 4 

Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 18:37

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Good luck!

Umferðarsultan, já: Þetta er minn daglegi veruleiki.

Ég reyni bara að nota tímann og hlusta á útvarp og hugsa og svona ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.9.2008 kl. 22:13

5 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Ekki er hún gáfulegri hér umferðarmenningin Badda mín, alltof mikið af gamalmennum sem keyra á 10-20. Sá einn koma út af heilsugæslunni í gær hann gat varla gengið hvað þá keyrt bíl, en keyrði samt. það tekur alltaf einn við af öðrum í því að halda umferðahraðanum niðri allavega á götum bæjarins hérna. En umferðin í Rvk um miðjan dag ótrúleg, er fólk ekkert að vinna þarna allar götur fullar að bílum

Grétar Rögnvarsson, 3.9.2008 kl. 13:53

6 identicon

Mikið er ég fegin að ég bý í sveit og þarf ekki að búa í svona umferð...varla umferð hérna í Kitimat, bara æði!

Hlakka til að þú komir heim svo þú getir hringt í mig á skype.

Knús,

Lína

Lina Marl Ara (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 19:05

7 Smámynd: Sóley Valdimarsdóttir

Og hér eru engin umferðarljós :-)

Sóley Valdimarsdóttir, 3.9.2008 kl. 21:39

8 Smámynd: Huldabeib

Hér eru sjálfskipaðar umferðalöggur og þær/þeir eru nú bara fyndnar/ir... Allavega fyndnari en rugludallar á nissan á skólalóð.

Huldabeib, 4.9.2008 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband